Um leigu á tjaldvagni / fellihýsi og reglur leigusamnings

Þegar tjaldvagn eða fellihýsi er tekið á leigu skrifar leigutaki undir leigusamning. Með undirskrift sinni skuldbindur hann sig til að hlýta reglum samningsins. Hér fyrir neðan eru tekin saman helstu atriði leigusamningsins auk annarra upplýsinga sem varða leigu á tjaldvagni eða fellihýsi.

  • Leigutaki ber ábyrgð á tæki og fylgibúnaði og skuldbindur sig til að bæta tjón sem kann að verða á leigutímanum. Ábyrgð hans fellur ekki niður fyrr en leigusali hefur móttekið tækið.
  • Ganga skal vel um tæki og halda vel til haga öllum þeim búnaði sem því fylgir.
  • Óheimilt er að aka með tæki um vegatroðninga, götuslóða, óbrúaðar ár, snjóskafla, ís eða aðrar vegleysur.
  • Virða skal leyfilegan hámarkshraða í akstri.
  • Ökutæki þarf að hafa viðurkenndan tengibúnað fyrir tjaldvagn/fellihýsi.
  • Reykingar eru með öllu bannaðar inni í tæki og gæludýrahald ekki leyfilegt.
  • Leigutaka er óheimilt að lána eða framleigja tæki.
  • Skila skal tæki, ásamt fylgihlutum, hreinu og snyrtilegu ella greiða þrifgjald kr. 10.000,-

Bókun

Staðfestingargjald kr.20.000,- þarf að greiða við bókun. Gjaldið er óafturkræft. Við greiðslu á staðfestingargjaldi þarf að senda kvittun frá heimabanka til palshus [hjá] palshus.is og gildir hún sem bókun. Gjaldið gengur upp í leiguverð.

Vinsamlegast athugið að sé greiðandi annar, en sá sem bókar tæki, er áríðandi að það komi fram í skýringu með greiðslu, ásamt tímabili leigu.

Leigutíminn, afhending og skil

Tæki eru leigð út viku í senn frá fimmtudegi til miðvikudags. Afhending tækja er frá kl.15-17 á fimmtudegi og þeim skal skila milli kl.17 og 18 á miðvikudegi.

Helgarleiga er frá föstudegi til mánudags. Tæki eru afhent frá kl. 17-18 á föstudegi og skal skilað milli kl. 17 og 18 á mánudegi.
*Athugið að helgarleigur eru ekki í boði frá 23. júní – 3. ágúst.

Við skil er tæki yfirfarið af leigusala að viðstöddum leigutaka. Skila skal tæki hreinu og snyrtilegu ella greiða kr. 10.000,- í þrifgjald.

Vinsamlegast virðið afhendinga- og skiladaga/tíma. Krafist er kr. 5000,- aukalega ef tæki er skilað á öðrum tíma en tekinn er fram í samningi.

Góð regla er að yfirfara tæki áður en lagt er af stað út úr bænum og ganga úr skugga um að engan staðalbúnað vanti. Vanti búnað skal hringja í leigusala (s.848 1488). Staðalbúnaður með tjaldvagni er borð, fjórir stólar, lítið gashelluborð (tveggja hella) og gaskútur (gas fylgir ekki).

Tryggingar

Tækin eru kaskótryggð hjá Sjóvá. Sjálfsábyrgð tryggingarinnar er kr. 95.000. Lesa má skilmála tryggingarinnar hér.