Tjaldvagnar

Combi – Camp vagninn er með þægilegri 4-6 manna svefnaðstöðu. 10-15 sekúndur tekur að tjalda honum án nokkurar áreynslu. Gluggatjöld eru fyrir öllum gluggum vagnsins og í svefnrými eru svefntjöld sem skipta rýminu í tvennt. Mögulegt er að opna á milli og breyta svefnrýminu í eitt stórt. Fyrir framan svefnrýmið hangir bómullarstykki með vösum á sem nýtast vel sem geymslurými undir allskyns smáhluti.
Fastur fylgibúnaður með tjaldvagni eru fjórir stólar, borð og gashelluborð með tveimur hellum. Hægt að leigja gashitara sem aukabúnað. Gas er ekki innifalið í verði. Fortjald er leigt aukalega og verður að panta fyrirfram.

Tæknilegar upplýsingar tjaldvagns

  • Lengd með beisli:3,60 m
  • Lengd kassa: 2,40 m
  • Breidd kassa: 1,70 m
  • Eigin þyngd: 320 kg
  • Burðargeta: 180 kg

Fellihýsi

Clipper fellihýsið er með rúmgóðri 4-6 manna svefnaðstöðu. Gluggatjöld eru fyrir öllum gluggum vagnsins og í svefnrými eru þægilegar dýnur. Hægt er að breyta eldhúskrók í svefnaðstöðu. Í fellihýsinu er gaseldavél, vaskur, ísskápur sem gengur fyrir gasi, miðstöð, útvarp/CD spilari og heitt rennandi vatn, tekur ca. 20 – 30 mín. að hitna. Fastur fylgibúnaður er borðbúnaður f/ 4 persónur.

Tæknilegar upplýsingar f/Clipper Sport 106 fellihýsi (minna hýsið)

  • Lengd með beisli: 4360 mm
  • Breidd :2160 m
  • Eigin þyngd: 765 kg
  • Burðargeta: 297g
  • Heildarþyngd:1062 kg

Tæknilegar upplýsingar f/Clipper Sport 107 fellihýsi (stærra hýsið)

  • Lengd með beisli: 4980 mm
  • Breidd :2160 m
  • Eigin þyngd: 747 kg
  • Burðargeta: 386 kg
  • Heildarþyngd:1133 kg

Vinsamlegast sendið fyrirspurn um lausar vikur hér.